Þessi síða er aðeins fyrir þá skjólstæðinga VIRK sem hafa fengið samþykkta beiðni um SheSleep appið. Óheimilt er að nota kóðana ef þú hefur ekki fengið leyfi til þess. Óheimilt er að deila kóðunum með öðrum.
Hvernig virkja ég áskrift að SheSleep appinu, eftir að beiðni hefur verið samþykkt af Betri Svefn og VIRK?
Ferlið fer eftir hvers slags stýrikerfi þú er með. Vinsamlega lesið þessar leiðbeiningar alveg til enda áður en kóðinn er virkjaður.
iPhone / iPad (iOS)
- Smelltu á hlekkinn hér að neðan eða skannaðu QR kóðann hér að neðan sem inniheldur kóðann og afslátturinn verður virkur sjálfkrafa. Ekki er hægt að slá kóðann inn handvirkt í App Store, heldur verður þú að smella á beina hlekkinn sem inniheldur kóðann eða skanna QR kóðann.
- Hér er beinn hlekkur á 3ja mánaða kóða fyrir IOS stýrikerfi: smella hér . Eða notaðu QR kóðann sem þú finnur hér að neðan.
- Ef þú ert ekki með appið fyrir, mun hlekkurinn fyrst vísa þér í App Store þar sem þú sækir SheSleep appið. Ef áskriftin virkjast ekki strax skaltu loka appinu alveg og opna það aftur.

Android
- Sæktu SheSleep í Google Play Store.
- Stofnaðu aðgang og staðfestu netfangið þitt.
- Veldu áskrift (mánaðar- eða ársáskrift).
- Á greiðsluskjánum skaltu smella á greiðslumáta og velja „Redeem code“ (sjá skjáskot hér að neðan hvar þú finnur reitinn).
- Sláðu inn kóðann SHESLEEP3M í “Redeem code” reitinn.
- Bíddu augnablik á meðan kerfið vinnur úr uppfærslunni.
- Kóðinn í Play Store virkar fyrir notendur í hvaða landi sem er.
Ekki verður rukkað fyrr en að 1 mánuði liðnum (ef þú varst að virkja fría mánaðaráskrift), að 3 mánuðum liðnum (ef þú varst að virkja fría 3ja mánaða) eða að ári liðnu (ef þú varst að virkja fría ársáskrift). Þú þarft að hafa greiðslukort á bakvið fríu áskriftina og velja áskriftarleið til þess að geta virkjað fríu áskriftina, en getur svo sagt henni upp þegar inn í appið er komið (sjá FAQ/algengar spurningar í SheSleep appinu hvernig hætt er í áskrift).
Sjá hér skjáskot af því hvar þú finnur “Redeem code” skjáinn í greiðsluferli Android stýrikerfa:


Ef „Redeem code“ birtist ekki á Android síma
Athugið að “Redeem code” er ekki hluti af SheSleep appinu sjálfu heldur opnast í Google Play Store. Ef glugginn birtist ekki eða kóðinn virkar ekki er vandamálið því oft tengt stillingum þínum í Google Play.
Þú getur prófað eftirfarandi:
- Athuga hvort Google Play Store sé uppfært í nýjustu útgáfu.
- Staðfesta að réttur Google-reikningur sé virkur í Play Store.
- Endurræsa símann eða Google Play appið ef glugginn birtist ekki.
- Leysa kóðann inn á öðru Android tæki eða í Play Store á tölvu.
Þar sem notkun kóðans fer fram í Google Play Store geta sum vandamál tengst stillingum eða reikningi þar, en ekki SheSleep appinu sjálfu.