Ég hefði aldrei trúað því fyrir 7 vikum síðan að ég myndi sofa heila nótt án þess að vakna - enda vön að vakna oft á hverri nóttu. Eftir að hafa farið í gegnum 6 vikna meðferð er ég farin að sofa alla nóttina það hefur mikil áhrif á lífsgæði mín til batnaðar. Mæli eindregið með námskeiði
Kona á fertugsaldri
Ég þakka fyrir mig nú, frábært að bjóða upp á þetta fyrir konu í afskekktri sveit norður í landi, sem er alls ekki í aðstöðu til að komast til sálfræðings eða reglubundið til sérfræðinga, og vissi ekki að þeir væru til yfirleitt
Karlmaður á þrítugsaldri
Takk fyrir mig. Virkilega flott prógramm sem virkaði vel fyrir mig. Góðir fyrirlestrar og ráðgjöf sem nýtist vel
Kona á þrítugsaldri
Ég er ótrúlega ánægður með að hafa drifið mig í þessa meðferð. í fyrsta sinn í mörg ár sofna ég á innan við hálftíma og ég finn gríðarlegan mun á daglegri orku - Takk fyrir mig!
Karlmaður á fertugsaldri
Ég mæli með meðferð Betri svefns af hjartans einlægni.
Kona á fertugsaldri
Ég hélt að ég hefði glatað hæfileikanum til að sofa heila nótt en eftir sex vikna meðferð Betri svefns finn ég mikinn mun til hins betra á nætursvefninum og að auki er ég laus við svefnlyfin sem ég hef verið háður í mörg ár.
Karlmaður á fimmtugsaldri
Frábært prógramm í alla staði -einfalt í notkun og hjálpaði mér virkilega mikið
karlmaður á þrítugsaldri
Veistu ég hefði ekki trúað því að ég gæti sofnað eða sofið heila nótt án svefnlyfja, en nú er ég komin ofan i 1/4 töflu og byrjuð að sleppa því jafnvel alveg - og svaf samt -- Nú fyrst er líkaminn orðinn forritaður í að fara að sofa þegar hann á að gera það ;)
Kona á fertugsaldri