Jóhann Wium

Jóhann Wium er nemi í klínískri sálfræði í starfsnámi hjá Betri Svefn. Jóhann hefur reynslu af öðrum sviðum sálfræði, lauk B.A prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands 2005, masterprófi í vinnu- og skipulagssálfræði frá New York University 2007 og er viðurkenndur flugsálfræðingur hjá Evrópska félagi flugsálfræðinga (EAAP). Jóhann hefur starfað í mörg ár í fluggeiranum, bæði hér á landi og erlendis, og hefur haldið erindi og fyrirlestra um streitu, geðheilbrigði, þrautseigju og þreytustjórnun.
Jóhann er að bæta við sig klínískum réttindum í sálfræði og hóf nám í Háskóla Reykjavíkur haustið 2024 og vinnur nú að lokaverkefni um heilbrigðisþjónustuforðun flugmanna.
Jóhann starfar undir handleiðslu reyndra sálfræðinga Betri Svefns og getur boðið upp á gjaldfrjálsa svefnráðgjöf fyrir nokkra skjólstæðinga. Hægt er að senda tölvupóst á betrisvefn@betrisvefn.is fyrir tímabókanir og nánari upplýsingar.
Hægt er að hafa samband við Jóhann í gegnum netfangið johann@betrisvefn.is

Skráðu þig á póstlistann

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur til að fá greinar og góð ráð um svefn ásamt tilboðum frá okkur og samsstarfsaðilum okkar.