
Inga Rún Björnsdóttir
Smelltu hér til að bóka sjálf/ur/t lausan tíma sem hentar þér.
Inga Rún Björnsdóttir er sálfræðingur hjá Betri svefni. Hún lauk B.A. prófi í sálfræði frá HÍ 2005 og mastersprófi frá Kaupmannahafnarháskóla 2015. Faglegur bakgrunnur hennar liggur innan taugasálfræði og klínískrar sálfræði. Inga Rún starfaði um árabil sem sálfræðingur í taugasálfræðiþjónustu Landspítala. Þar starfaði hún í þverfaglegum teymum, m.a. heilaskaðateymi Grensáss. Inga Rún starfaði einnig um árabil sem stundakennari í klínískri taugasálfræði við sálfræðideild HÍ.
Inga Rún hefur mikinn áhuga á mikilvægi svefns fyrir líkamlega og andlega heilsu. Hún heldur fyrirlestra og námskeið fyrir fyrirtæki, vinnustaði, íþróttafélög, skóla og ýmis félagasamtök. Hún stýrir hópnámskeiðum Betri svefns, veitir einstaklingsmeðferð og almenna ráðgjöf við svefnvanda, kvíða, streitu og fleira, ásamt því að handleiða nemendur í starfsnámi. Hún er einnig í þróunarteymi SheSleep, svefn-appi sem sniðið er að konum.
Inga Rún hefur sótt námskeið og vinnustofur í hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi, HAM-S (e. Cognitive Behavioural Therapy for Insomnia, CBT-I), auk námskeiða og þjálfunar í ACT (Acceptance and Commitment Therapy). Hún hefur sótt fjölmargar alþjóðlegar ráðstefnur innan sálfræðinnar.
Auk sálfræðimenntunar er Inga Rún einnig menntuð jógakennari og jóga nidra kennari og leiðir fræðslu- og slökunarviðburði með áherslu á streitulosun, andlega vellíðan og bættan svefn.
Þú getur bókað tíma með því að finna Ingu Rún í Noona appinu í gegnum þennan hlekk https://noona.is/salogsvefn. Einnig er hægt að senda henni tölvupóst á inga@betrisvefn.is. Inga Rún sinnir aðallega meðferð við svefnvanda, kvíða, depurð, streitu og lágu sjálfsmati með aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og ACT (Acceptance and Commitment Therapy). Einnig ef þú ert með fyrirspurn um að bóka fræðslufyrirlestra (t.d. um svefn, streitu og fleira) eða fá frekar upplýsingar um þjónustuna sem við veitum.