Ferlið fer eftir hvers slags stýrikerfi þú er með.


iPhone / iPad (iOS)

  • Smelltu á hlekkinn smella hér eða skannaðu QR kóðann hér fyrir neðan og afslátturinn verður virkur sjálfkrafa. Ekki er hægt að slá kóðann inn handvirkt í App Store, heldur verður þú að smella á beina hlekkinn hér fyrir ofan sem inniheldur kóðann eða skanna QR kóðann.
  • Ef þú ert ekki með appið fyrir, mun hlekkurinn fyrst vísa þér í App Store þar sem þú sækir SheSleep appið. Ef áskriftin virkjast ekki strax skaltu loka appinu alveg og opna það aftur.

Android

  • Sæktu SheSleep í Google Play Store.
  • Stofnaðu aðgang og staðfestu netfangið þitt.
  • Veldu áskrift (mánaðar- eða ársáskrift).
  • Á greiðsluskjánum skaltu smella á greiðslumáta og velja „Redeem code“ (sjá skjáskot hér að neðan hvar þú finnur reitinn).
  • Sláðu inn kóðann SHESLEEP3M í “Redeem code” reitinn.
  • Bíddu augnablik á meðan kerfið vinnur úr uppfærslunni.
  • Kóðinn í Play Store virkar fyrir notendur í hvaða landi sem er.

Ekki verður rukkað fyrr en að 1 mánuði liðnum (ef þú varst að virkja fría mánaðaráskrift), að 3 mánuðum liðnum (ef þú varst að virkja fría 3ja mánaða) eða að ári liðnu (ef þú varst að virkja fría ársáskrift). Þú þarft að hafa greiðslukort á bakvið fríu áskriftina og velja áskriftarleið til þess að geta virkjað fríu áskriftina, en getur svo sagt henni upp þegar inn í appið er komið (sjá FAQ/algengar spurningar í SheSleep appinu hvernig hætt er í áskrift).


Sjá hér skjáskot af því hvar þú finnur “Redeem code” skjáinn í greiðsluferli Android stýrikerfa:

Ef „Redeem code“ birtist ekki á Android síma

Athugið að “Redeem code” er ekki hluti af SheSleep appinu sjálfu heldur opnast í Google Play Store. Ef glugginn birtist ekki eða kóðinn virkar ekki er vandamálið því oft tengt stillingum þínum í Google Play.

Þú getur prófað eftirfarandi:

  • Athuga hvort Google Play Store sé uppfært í nýjustu útgáfu.
  • Staðfesta að réttur Google-reikningur sé virkur í Play Store.
  • Endurræsa símann eða Google Play appið ef glugginn birtist ekki.
  • Leysa kóðann inn á öðru Android tæki eða í Play Store á tölvu.

Þar sem notkun kóðans fer fram í Google Play Store geta sum vandamál tengst stillingum eða reikningi þar, en ekki SheSleep appinu sjálfu.