Víkurskóli fyrstur skóla á Íslandi til að hljóta svefnvottun 

Betri Svefn og Víkurskóli hafa lokið farsælu samstarfsverkefni sem markar tímamót í skólaumhverfi hérlendis. Víkurskóli er nú fyrsti svefnvottaði skóli landsins, en svefnvottun felur í sér markvissa nálgun að bættri svefnheilsu starfsfólks. 

Í verkefninu fékk starfsfólk skólans fræðslu um mikilvægi svefns fyrir líkamlega og andlega heilsu. Jafnframt var starfsfólk skimað fyrir svefnvanda og fékk aðgang að gagnreyndum úrræðum til að bæta svefn og draga úr svefnvanda. Starfsfólki var einnig boðið einstaklingsviðtal hjá svefnráðgjafa meðan á samstarfinu stóð, auk þess tók starfsfólk  þátt í viðburði sem beindist að slökun og streitustjórnun.

Þátttaka í verkefninu var mjög góð og sýndi starfsfólk mikinn áhuga og virka þátttöku í öllum þáttum þess. Árangur verkefnisins var metinn við lok þess og niðurstöður sýndu skýra og mjög jákvæða þróun í svefnheilsu starfsfólks. 

Þar að auki hafa foreldrar barna í Víkurskóla fengið fræðslu um svefn og fyrirhugað er að veita nemendum skólans einnig fræðslu um mikilvægi svefns ásamt hagnýtum ráðum til að hlúa að góðum svefni. 

Samstarfið undirstrikar mikilvægi þess að huga að svefnheilsu innan vinnustaða og sýnir að markviss fræðsla og aðgengi að viðeigandi úrræðum getur skilað mælanlegum og jákvæðum árangri. Svefnvottun Víkurskóla setur fordæmi fyrir aðra skóla og vinnustaði sem vilja efla vellíðan, heilsu og starfsumhverfi starfsfólks. 

Inga Rún Björnsdóttir, sálfræðingur hjá Betri Svefni afhenti í janúar 2026 Víkurskóla viðurkenninguna fyrir hönd Betri Svefns. Á myndinni hér að ofan taka Þuríður Óttarsdóttir, skólastjóri og Vala Nönn Gautsdóttir, deildarstjóri við viðurkenningunni um svefnvottun fyrir hönd Víkurskóla. 

Inga Rún Björnsdóttir og Dr.Erla Björnsdóttir, sálfræðingar hjá Betri Svefni spjölluðu við Guðrúnu Gunnarsdóttur og Gunnar Hansson um þetta skemmtilega verkefni í Mannlega þættinum á Rás 1 þann 28.janúar og má hlusta á þáttinn hér:

Hlusta á umfjöllunina í Mannlega þættinum

Skráðu þig á póstlistann

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur til að fá greinar og góð ráð um svefn ásamt tilboðum frá okkur og samsstarfsaðilum okkar.