
Er hvíld starfsmanna ábyrgð fyrirtækja?
Jóhann Wium skrifar hér um þreytustjórnun. Jóhann lauk B.A prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands 2005, mastersprófi í vinnu- og skipulagssálfræði frá New York University 2007 og er viðurkenndur flugsálfræðingur hjá Evrópska félagi flugsálfræðinga (EAAP). Jóhann hefur starfað í mörg ár í fluggeiranum, bæði hér á landi og erlendis, og hefur haldið erindi og fyrirlestra um streitu, geðheilbrigði, þrautseigju og þreytustjórnun.
Hve mikið bera fyrirtæki ábyrgð á því að starfsmenn þeirra séu nægilega úthvíldir til að sinna störfum sínum? Skiptir þreyta það miklu máli fyrir virkni og frammistöðu starfsmanna að fyrirtæki ættu að skipuleggja sérstaklega vinnutíma og verkefni til að lágmarka þau áhrif? Er þreyta starfsmanna eitthvað sem þarf að stýra sérstaklega í nútímafyrirtækjum?
Ábyrgð starfsmanna eða fyrirtækja?
Eðlilega mun sumum finnast þetta einkennilegar spurningar. Ekki er hægt að stýra hvað starfsmenn gera utan vinnutíma, og því hvort þeir mæta í vinnunna úthvíldir eða ekki hlýtur að vera þeirra ábyrgð. Eða er þetta kannski enn ein krafan um ofur-öryggi og með þessu áframhaldi verður ekki hægt að geispa í vinnunni nema að áhættumat sé gert í kjölfarið?
Þó glettilega framsett, þá eru þetta gildar og góðar athugasemdir. Svarið er að í flestum aðstæðum þá er þetta ekki atriði sem fyrirtæki þurfa að hugsa mikið um ef stjórnunarhættirnir eru í lagi og vinnuréttur virtur. Í sumum störfum, hinsvegar, geta afleiðingar ofþreytu starfsmanna verið það miklar að það er nauðsynlegt að vakta og stýra fyrir áhrifum þreytu starfsmanna.
Áhrif þreytu á öryggi og mistök
Langar vaktir (og mest þær sem gerast yfir næturtíma) og magn verkefna, hafa áhrif á líkurnar á mistökum í starfi. Ofþreyta er talin valda milli 10-20% slysa, hvort sem það eru bílslys, flugslys eða vinnuslys, og því er þetta einn helsti áhættuþáttur sem hægt er að stýra og lágmarka.
Við vitum líka að ef fyrirtæki eru ekki að skoða þreytu starfsmanna sérstaklega, þá getur það hæglega gleymst í amstri dagsins. Síðan ef eitthvað gerist, alvarleg mistök eða jafnvel slys, þá er of seint að laga vandamálið eftirá. Skaðinn er skeður og þá sér fólk eftir því að hafa ekki verið vakandi fyrir þessum þætti áður.
Þreytustjórnun í atvinnulífinu
Þreyta starfsmanna er þekktur slysavaldur og sumar starfsstéttir eru með sérstakar kröfur sem tengjast þreytustjórnun (e. fatigue management). Þessar kröfur eru algengar í flugbransanum og stóriðju en eru líka landskröfur í t.d. í Ástralíu í kjölfar ljótra bílslysa avinnubílstjóra út á landi. Þreytustjórnun er oft hluti af kröfum um vinnuvernd og er partur af ISO45001 staðlinum tengdum þeim málaflokki.
En hvað er þreytustjórnun?
Þreytustjórnun er aðferðafræði þar sem skipulag vinnutíma og verkefna er skoðað með það í huga að minnka líkurnar á að þreyta starfsmanna geti valdið slysum eða mistökum í starfi. Mikið til af því sem er praktíserað í þreytustjórnun telst almenn skynsemi – en því miður þá er almenn skynsemi ekki endilega algeng skynsemi og því gott að vita að það er til skipulögð aðferðafræði til að hjálpa til í þessum málaflokki.
Þreytustjórnun skoðar vaktafyrirkomulag og vinnutíma með tilliti til að svefns og hvíldar, horfir á fyrri atvik til að sjá hvort að þreyta hafi verið áhrifaþáttur og leitar að leiðum til að ræða við starfsmenn hvar mætti bæta vinnu- og verkefnafyrirkomulag. Þreytustjórnun snýst ekki um að lágmarka vinnu (þar sem of lítið álag getur líka gert fólk þreyttara), heldur að það komi ekki álagstímabil í vinnunni sem eru óþarfi og væri hægt að forðast.
Svefnvottun sem stuðningur við starfsfólk
Svefnvottun Betri Svefns getur verið hluti af þreytustjórnun fyrirtækja, og þá sérstaklega að styðja við starfsmennina sjálfa ef þeir eru að kljást við svefnvanda. Fræðslan tengt vottuninni ræðir einnig hlutverk svefn og hvíldar og er hluti af vitundarvakningu um hlutverk svefns í okkar lífi. Ef fyrirtæki vilja bæta þreytustjórnun og styðja við starfsfólk sitt, er Svefnvottun Betri Svefns skýr og áhrifarík leið til að hefja þá vegferð.
Líðan starfsfólks og árangur fyrirtækja
Í rekstri fyrirtækja skiptir vellíðan og heilsa starfsmanna máli og hefur bein áhrif á vinnuframlag, starfsmannaveltu og slysatíðni. Þreytustjórnun getur þar verið áhrifaríkur liður í að styðja við starfsmenn og gæti verið vert að skoða áður en einhver sofnar á verðinum.
Jóhann Wium
Kynntu þér fyrirtækjaþjónustu Betri Svefns með því að smella á hlekkinn: