
🌙 Hvað er jóga nidra – og hvers vegna ættir þú að prófa?
Hvað er jóga nidra?
Jóga nidra, oft kallaður “jógískur svefn”, er leidd meðvituð djúpslökun þar sem líkaminn fær að slaka alveg á, en hugurinn helst vakandi á ákveðnu stigi meðvitundar. Þú liggur á bakinu, með teppi yfir þér og púða undir höfði og jafnvel púða undir hnjánum einnig, og fylgir rödd leiðbeinanda sem fer með þig í gegnum líkamskönnun, öndunaræfingar og sjónræna ímyndun.
Það sem gerir jóga nidra sérstakt er að það leiðir okkur í ástand milli svefns og vöku, þar sem taugakerfið nær djúpri hvíld. Jógarnir segja gjarnan að 45 mínútna jóga nidra geti haft jafn endurnærandi áhrif á líkama og huga og 2-3 klst. svefn!
Hver getur ávinningur jóga nidra djúpslökunar verið?
- Bætt svefn, hjálpað þér að sofna og aukið gæði svefnsins
- Getur minnkað streitu og kvíða
- Mildað verki, spennu og streitueinkenni
- Aukið einbeitingu og athygli
- … og margt fleira.
Ásetningur (Sankalpa) – Fræ í meðvitund
Í jóga nidra bjóðum við huganum að velja sér ásetning: milda setningu eða innra loforð sem við endurtökum í slökun. Þetta getur verið eitthvað eins og:
„Ég leyfi mér að hvílast.“
„Ég rækta innri frið með mýkt og þolinmæði.“
„Ég hlusta á þarfir mínar með virðingu.“
… eða eitthvað allt annað.
Ásetningurinn er líkt og fræ sem plantað er djúpt í hugann þegar hann er opnastur og móttækilegur, og með tímanum byrjar fræið að vaxa og hafa áhrif á daglega líðan.
Fyrir hverja er jóga nidra?
Jóga nidra hentar öllum, líka þeim sem eiga erfitt með að hugleiða eða stunda slökun. Í fyrstu kann hugurinn að vera órólegur og erfitt að ná djúpri slökun, en með æfingu getur líkaminn farið að þekkja þetta ástand og svara því með ró og jafnvægi. Líkt og að styrkja vöðva með reglulegri hreyfingu, styrkjum við taugakerfið með slökun. Ávinningurinn eykst gjarnan með hverri æfingu.
Það er í raun ekki hægt að gera jóga nidra rangt, þú þarft ekkert að gera, bara finna og vera. Það er frábært fyrir fólk á öllum æviskeiðum, hvort sem þú ert að glíma við svefntruflanir, hormónasveiflur eða streitu, þá hvetjum við þig til að prófa jóga nidra djúpslökun.
Prófaðu sjálf
Ég mæli með að þú takir frá 20–30 mínútur, komir þér þægilega fyrir í rólegu umhverfi og hlustir á eina af jóga nidra æfingunum sem finna má í SheSleep appinu.
🌙 Jóga nidra er einföld en öflug leið til að hlúa að taugakerfinu, hvíla hugann og rækta innri ró.