Svefn ungbarna og líðan foreldra

Svefn ungbarna og líðan foreldra

Fyrstu mánuðirnir með nýtt barn fela í sér miklar breytingar og svefninn er þar engin undantekning. Svefn og breytt svefnmynstur verða gjarnan stór hluti af daglegu lífi nýrra foreldra og spurningarnar geta verið margar. Hversu mikið á barnið að sofa? Af hverju vaknar það svona oft? Hvenær ætti að koma á rútínu?

Svefn ungbarna er frábrugðinn svefni fullorðinna og breytist mikið á fyrsta æviárinu. Næturvökur eru algengar og svefnmynstrið getur tekið miklum breytingum eftir því sem barnið vex og þroskast.

Svefn barnsins hefur þó ekki eingöngu áhrif á barnið sjálft. Ef barnið vaknar oft á nóttunni getur það einnig haft áhrif á svefn og líðan foreldranna.

Hversu mikið sofa ungbörn?

Svefnþörf er mikil á fyrstu mánuðum ævinnar. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) mælir með að börn yngri en þriggja mánaða fái um 14–17 klukkustunda svefn á sólarhring. Fyrir börn á aldrinum 4–11 mánaða er miðað við um 12–16 klukkustundir, að daglúrum meðtöldum.

Þetta eru þó viðmið en ekki regla sem öll börn þurfa að fylgja nákvæmlega. Svefnmynstur getur verið mjög mismunandi milli barna og breyst hratt á fyrsta æviárinu.

Svefn barnsins og líðan foreldra

Ef barn vaknar oft á nóttunni getur það haft áhrif á svefn foreldranna. Það getur verið krefjandi, sérstaklega þegar lítil tækifæri gefast til að bæta upp tapaðan svefn yfir daginn.

Rannsóknir benda til tengsla á milli svefnvanda eftir fæðingu og andlegrar líðanar mæðra. Samband svefns og líðanar er þó flókið og margir þættir hafa þar áhrif. Svefn barnsins einn og sér segir því ekki til um hvernig foreldrum líður.

Það undirstrikar samt mikilvægi þess að huga að svefni foreldra samhliða svefni barnsins. Þegar nýtt barn kemur inn á heimilið snýst góður svefn ekki bara um einn einstakling heldur fjölskylduna í heild.

Rútína og svefn

Á fyrstu vikum ævinnar er svefninn oft óreglulegur og fyrst um sinn snýst kvöldrútínan fremur um ró og nánd en ákveðinn háttatíma. Regluleg kvöldrútína getur þó verið góð leið til að skapa ró og fyrirsjáanleika í kringum svefninn.

Rútínan þarf alls ekki að vera löng eða flókin. Hún getur til dæmis falist í því að draga úr áreiti þegar líður á kvöldið, fara í náttföt, lesa bók, syngja eða eiga rólega stund saman áður en barnið fer að sofa.

Rannsóknir hafa sýnt að regluleg kvöldrútína tengist betri svefni hjá ungum börnum. Börn með reglulega rútínu fyrir svefn hafa meðal annars verið líklegri til að sofna fyrr, vera fljótari að sofna, vakna sjaldnar yfir nóttina og sofa lengur.

Rútínan þarf þó ekki að vera nákvæmlega eins á hverju kvöldi heldur getur verið nóg að ákveðin atriði endurtaki sig og gefi barninu vísbendingu um að nú sé farið að líða að svefni.

Getur kvöldrútína hjálpað foreldrum?

Ávinningurinn af góðri kvöldrútínu gæti náð lengra en að svefni barnsins.

Í rannsóknum þar sem regluleg kvöldrútína hefur verið innleidd hafa sést jákvæðar breytingar á ýmsum þáttum svefns barna. Á sama tíma hafa einnig sést jákvæðar breytingar á líðan mæðra.

Þetta er mikilvægt þegar rætt er um svefn ungbarna. Þegar svefn barnsins verður fyrirsjáanlegri og næturnar rólegri getur það einnig skipt máli fyrir foreldrana sem vakna með barninu.

Hvernig getur góð kvöldrútína litið út?

Það er engin ein kvöldrútína sem hentar öllum börnum eða fjölskyldum. Mikilvægast er að finna eitthvað sem hentar fjölskyldunni og hægt er að halda nokkuð reglulega.

Gott getur verið að byrja að hægja á þegar líður að háttatíma og draga úr miklu áreiti. Síðan má skapa einfalda röð athafna sem barnið fer smám saman að þekkja. Það gæti til dæmis verið:

Bað – náttföt – dempuð lýsing – bók eða söngur – knús -svefn.

Rútínan þarf ekki að fara fullkomlega eftir áætlun á hverju kvöldi. Markmiðið er frekar að skapa ákveðna ró, reglusemi og fyrirsjáanleika í kringum svefninn.

Börn eru ólík

Það getur verið auðvelt að bera svefn eigin barns saman við svefn annarra barna. Eitt barn virðist sofa alla nóttina á meðan annað vaknar oft. Eitt barn tekur langa daglúra en annað sefur stutt í einu.

Svefn barna er einstaklingsbundinn og breytist jafnframt mikið með aldri og þroska. Næturvökur þýða því ekki sjálfkrafa að eitthvað sé að eða að foreldrar séu að gera eitthvað rangt.

Markmiðið með góðum svefnvenjum er ekki að skapa „fullkominn“ svefn heldur að styðja við svefn barnsins á þann hátt sem hentar barninu og fjölskyldunni.

Að lokum

Svefn ungbarna er síbreytilegur og það sem virkar vel eina vikuna virkar ekki endilega jafn vel þá næstu.

Regluleg og róleg kvöldrútína getur verið einföld leið til að skapa meiri fyrirsjáanleika í kringum svefninn. Hún þarf hvorki að vera flókin né fullkomin.

Þegar rætt er um svefn ungbarna er líka mikilvægt að gleyma ekki foreldrunum. Svefn barnsins og svefn og líðan foreldra tengjast á ýmsan hátt og því getur verið gagnlegt að horfa á svefn fjölskyldunnar sem heild.

Heimildir

https://pmc.ncbi.nlm.nih.gov/articles/PMC4402657

https://pmc.ncbi.nlm.nih.gov/articles/PMC2675894/
https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/26555938/

Skoða leiðbeiningar WHO

Skúladóttir, A. (2020). Draumaland: Frá fæðingu til sex ára aldurs. Sögur útgáfa.

Skráðu þig á póstlistann

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur til að fá greinar og góð ráð um svefn ásamt tilboðum frá okkur og samsstarfsaðilum okkar.